
Rómantískt Reikningakvöld
Þetta námskeið er sérstaklega ætlað pörum til að skipuleggja fjármálin saman til að ná sameiginlegum
Upplýsingar um námskeið
Markmið Markmið námskeiðsins er fyrir hjón/pör að stilla saman fjárhagsleg markmið sín og skipuleggja fjármálin til að ná framúrskarandi fjárhagslegri heilsu. Um námskeiðið Peningaáhyggjur eru ein algengasta orsök ágreinings í parasamböndum. Fjárhagslegur óviðráðanleiki og ólík viðhorf til eyðslu getur svo sannarlega grafið undan samstöðu og trausti í annars ágætu sambandi. Til að hlúa að rómantíkinni má ekki gleyma að hlúa að fjármálunum. Á þessu námskeiði er farið yfir hvernig hægt er að setja upp mánaðarlegt stefnumót yfir reikningnum á skemmtilegan og uppbyggilegan hátt. Hvernig lítur mánuðurinn út, hvað gekk vel og hverju má breyta og hvað má bæta? Hvað er framundan? Eru markmiðin enn þau sömu og einu sinni var lagt upp með? Þetta snýst um að efla heiðarleika og samstöðu um fjármálin. Nýlegar rannsóknir á velferð einstaklinga sýna að fjármál lita í síauknum mæli upplifun okkar á lífsgæðum og öryggi í tilverunni. Hugtakið fjárhagsleg heilsa merkir að fjármálin styðji við markmið okkar í lífinu og að okkur lífið vel með fjármálin okkar. Fjárhagsleg meðvitund merkir að við þekkjum nákvæmlega stöðuna í fjármálunum: Hvað kemur inn? Hvað fer út? Í hvað viljum við raunverulega nota peningana okkar? Á námskeiðinu er unnið með viðhorf til peninga og hvernig við getum valdeflt okkur með því að styrkja þekkingu í fjármálum og komið góðu skipulagi á þau. Meðal þeirra spurninga sem er svarað er: Hvernig förum við að því að uppfylla drauma okkar? Hvernig gerum við sparnaðarskipulag? Hvaða sparnaður er bestur? Hvaða munur er á varasjóði og öðrum sparnaði? Hvernig gerum við peningaáætlun? Er erfitt að halda peningabókhald? Hvernig veljum við í hvað peningarnir fara? Hvaða greiðsluleiðir eru bestar fyrir okkur? Hvaða valmöguleikar eru í boði þegar verið er að stofna heimili? Hvað skiptir mestu máli þegar íbúðalán er valið? Hvernig höldum við yfirsýn yfir fjármálin? Hvaða tryggingar þurfum við að vera með? Í hvaða viðbótarlífeyrissparnað er best að spara? Er einhver munur á milli lífeyrissjóða? Hvað er mikilvægast að vita um lán almennt? Hvað er svona rómantískt við reikningakvöld? Og margt fleira tengt fjárhagslegri heilsu. Fyrir hverja Námskeiðið hentar öllum pörum sem vilja taka fjármálin í gegn og stilla sig saman, þannig að draumar þeirra og framtíðarmarkmið rætist. Námskeiðið er gagnlegt öllum pörum, sama í hvaða tekjustiga þau eru.
