top of page

Ljúfa lífið lífeyrisnámskeið

3 hr
19.900 íslenskar krónur
Fjarnámskeið

Upplýsingar um námskeið

Markmið Markmiðið er að undirbúa þátttakendur fyrir starfslok og lífeyristöku til að gera þér kleift að ná þínum markmiðum og láta drauma þína rætast. ​ Um námskeiðið Ljúfa lífið er þegar við höfum lokið starfsævinni og förum ekki lengur í vinnu á hverjum degi en þess í stað erum við í sumarfríi 52 vikur á ári og við viljum lifa og njóta. Til þess notum við lífeyrissparnað og ýmsar aðrar leiðir. Þetta námskeið er sérstaklega ætlað þeim sem eru farin að huga að starfslokum og hefja “Ljúfa lífið”. Á þessu námskeiði er farið yfir hvaðan tekjur koma og hvernig þú getur nýtt peningana þína til að þeir uppfylli þínar væntingar á þessu æviskeiði. ​​​ Meðal þeirra spurninga sem er svarað er: Hvenær er best að byrja að taka út lífeyrisgreiðslur mínar? Hvenær er best að taka út viðbótarlífeyrissparnað? Ég er með tilgeinda séreign, hvenær á að taka það út? Hvaða skatta þarf ég að greiða? Í hvaða tilfellum þarf ég að borga fjármagnstekjuskatt? Get allir fengið lífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins? Hvað eru skerðingar lífeyris? Hvernig skiptast lífeyrisréttinda á milli hjóna? Hverjir þurfa að gera erfðaskrá? Hvernig get ég nýtt eignir mínar til lífeyris? Og margt fleira sem tengist Ljúfa lífinu og lífeyrismálum. Það sem þátttakendur fá á námskeiðinu Áhersla er á að fara yfir málin á mannamáli á léttan og skemmtilegan hátt. Þátttakendur fá skjal til að gera sína LÍFEYRISÁÆTLUN, þannig getur þú séð þína möguleika og skoðað hvernig þú vilt raða upp þinni innkomu á þessu tímabili í lífinu. Einnig fá þátttakendur samantektar bækling til að nota til upprifjunar. Fyrir hverja​ Námskeiðið hentar vel fyrir 45 ára og eldri sem vilja undirbúa vel sín starfslok og lífeyristöku. Mikilvægt er fyrir alla að skipuleggja vel þennan kafla í lífinu, til að hann til að verða auðveldur og ánægjulegur. Námskeiðið hentar öllum óháð því í hvaða tekjustigi þeir eru.


Næstu námskeið


bottom of page