Þetta námskeið er sérstaklega ætlað pörum til að skipuleggja fjármálin saman til að ná sameiginlegum markmiðum.
Næstu námskeið
24. mars og 28. apríl kl. 20:00 - 21:00, fjarnámskeið á TEAMS
22. apríl og 27. maí kl. 20:00 - 21:00, fjarnámskeið á TEAMS
Verð 18.900 kr.
Snemmskráningar verð 15.000 kr.
til og með 15. mars.
Markmið
Markmiðið er að pör geti snúið bökum saman þegar kemur að peningum og fundið leiðir til að ná framúrskarandi árangri. Við leggjum áherslu á einfaldleika og léttara hugarfar þannig að fjármálin verði skemmtilegt samvinnuverkefni í stað þess að vera kvöð.
Fyrirkomulag
Námskeiðið stendur yfir í tvo mánuði og fer fram í gegnum tvö, klukkutíma löng, rauntíma fjarfundanámskeið á Teams.
-
Hluti 1: Rómantískt reikningakvöld og sparnaðarskipulag. Við leggjum grunninn og búum til plan sem virkar.
-
Milli funda: Nú er komið að framkvæmdinni! Þátttakendur fínpússa sín fjármál með fullum stuðningi ráðgjafa sem svarar öllum spurningum sem vakna á tímabilinu.
-
Hluti 2: Framtíðin og öryggið. Farið er yfir greiðsluleiðir, lífeyrismál, lán og tryggingar.
-
Eftirfylgni: Ráðgjöfin er þér opin í tvo mánuði frá upphafi námskeiðs. Við hvetjum þig til að nýta tækifærið og spyrja um það sem brennur á þér, svo þú getir tryggt fjárhagslega heilsu til frambúðar.
Á námskeiðinu færðu praktísk verkfæri og aðferðir til að hámarka fjárhagslegan árangur þinn.
Um námskeiðið
Peningaáhyggjur eru ein algengasta orsök ágreinings í parasamböndum. Fjárhagslegur óviðráðanleiki og ólík viðhorf til eyðslu getur svo sannarlega grafið undan samstöðu og trausti í annars ágætu sambandi. Til að hlúa að rómantíkinni má ekki gleyma að hlúa að fjármálunum.
Á þessu námskeiði er farið yfir hvernig hægt er að setja upp mánaðarlegt stefnumót yfir reikningnum á skemmtilegan og uppbyggilegan hátt. Hvernig lítur mánuðurinn út, hvað gekk vel og hverju má breyta og hvað má bæta? Hvað er framundan? Eru markmiðin enn þau sömu og einu sinni var lagt upp með? Þetta snýst um að efla heiðarleika og samstöðu um fjármálin.
Nýlegar rannsóknir á velferð einstaklinga sýna að fjármál lita í síauknum mæli upplifun okkar á lífsgæðum og öryggi í tilverunni. Hugtakið fjárhagsleg heilsa merkir að fjármálin styðji við markmið okkar í lífinu og að okkur lífið vel með fjármálin okkar. Fjárhagsleg meðvitund merkir að við þekkjum nákvæmlega stöðuna í fjármálunum: Hvað kemur inn? Hvað fer út? Í hvað viljum við raunverulega nota peningana okkar?
Á námskeiðinu er unnið með viðhorf til peninga og hvernig við getum valdeflt okkur með því að styrkja þekkingu í fjármálum og komið góðu skipulagi á þau.
Meðal þeirra spurninga sem er svarað er:
-
Hvernig förum við að því að uppfylla drauma okkar?
-
Hvernig gerum við sparnaðarskipulag?
-
Hvaða sparnaður er bestur?
-
Hvaða munur er á varasjóði og öðrum sparnaði?
-
Hvernig gerum við peningaáætlun?
-
Er erfitt að halda peningabókhald?
-
Hvernig veljum við í hvað peningarnir fara?
-
Hvaða greiðsluleiðir eru bestar fyrir okkur?
-
Hvaða valmöguleikar eru í boði þegar verið er að stofna heimili?
-
Hvað skiptir mestu máli þegar íbúðalán er valið?
-
Hvernig höldum við yfirsýn yfir fjármálin?
-
Hvaða tryggingar þurfum við að vera með?
-
Í hvaða viðbótarlífeyrissparnað er best að spara?
-
Er einhver munur á milli lífeyrissjóða?
-
Hvað er mikilvægast að vita um lán almennt?
-
Hvað er svona rómantískt við reikningakvöld?
Og margt fleira tengt fjárhagslegri heilsu.
Fyrir hverja
Námskeiðið hentar öllum pörum sem vilja taka fjármálin í gegn og stilla sig saman, þannig að draumar þeirra og framtíðarmarkmið rætist. Námskeiðið er gagnlegt öllum pörum, sama í hvaða tekjustiga þau eru.
Námskeiðið hentar einnig öllum einstaklingum sem vilja taka stöðuna á fjármálunum sínum og vilja stöðugt vinna að því að efla sína fjárhagslegur heilsu til að njóta sinna fjármuna sem best.
Hægt er að panta sérnámskeið fyrir hópa á íslensku eða ensku.
Nánar um kennarann
Þóra Valný Yngvadóttir hefur yfir 25 ára reynslu á fjármálamarkaði þar sem hún starfaði sem
fjármálaráðgjafi í Prudential Englandi og stjórnandi í Kaupþingi og Landsbankanum. Hún hefur
haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða víðsvegar um landið um flest allt tengt fjármálum s.l. 25
ár.
Þóra Valný er viðskiptafræðingur frá Oxford Brookes University í Englandi með löggildingarpróf í fjármálaráðgjöf FPC frá viðskiptaráðuneyti Bretlands. Hún er einnig með löggildingu í verðbréfaviðskiptum frá Háskóla Íslands og ACC vottaður markþjálfi frá Háskólanum í Reykjavík.
Þóra Valný er með fyrirtækið Val og virði þar sem hún veitir einstaklingum fjármálaráðgjöf og heldur námskeið fyrir einstaklinga og fyrirtæki um allt tengt fjármálum einstaklinga, söluþjónustu, persónulega stefnumótun og fleira.

