Markmið
Markmiðið er að undirbúa þátttakendur fyrir starfslok og lífeyristöku til að gera þér kleift að ná þínum markmiðum og láta drauma þína rætast.
Um námskeiðið
Ljúfa lífið er þegar við höfum lokið starfsævinni og förum ekki lengur í vinnu á hverjum degi en
þess í stað erum við í sumarfríi 52 vikur á ári og við viljum lifa og njóta.
Til þess notum við lífeyrissparnað og ýmsar aðrar leiðir. Þetta námskeið er sérstaklega ætlað þeim sem eru farin að huga að starfslokum og hefja “Ljúfa lífið”.
Á þessu námskeiði er farið yfir hvaðan tekjur koma og hvernig þú getur nýtt peningana þína til að þeir uppfylli þínar væntingar á þessu æviskeiði.
Meðal þeirra spurninga sem er svarað er:
-
Hvenær er best að byrja að taka út lífeyrisgreiðslur mínar?
-
Hvenær er best að taka út viðbótarlífeyrissparnað?
-
Ég er með tilgeinda séreign, hvenær á að taka það út?
-
Hvaða skatta þarf ég að greiða?
-
Í hvaða tilfellum þarf ég að borga fjármagnstekjuskatt?
-
Get allir fengið lífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins?
-
Hvað eru skerðingar lífeyris?
-
Hvernig skiptast lífeyrisréttinda á milli hjóna?
-
Hverjir þurfa að gera erfðaskrá?
-
Hvernig get ég nýtt eignir mínar til lífeyris?
Og margt fleira sem tengist Ljúfa lífinu og lífeyrismálum.
Það sem þátttakendur fá á námskeiðinu
Áhersla er á að fara yfir málin á mannamáli á léttan og skemmtilegan hátt. Þátttakendur fá skjal til að gera sína LÍFEYRISÁÆTLUN til að sjá sína möguleika og skoða hvernig þú vilt raða upp þinni innkomu á þessu tímabili í lífinu.
Einnig fá þátttakendur samantektar bækling til að nota til upprifjunar.
Fyrir hverja
Námskeiðið hentar þeim sem eru að nálgast starfsflok og eru að huga að lífeyristöku. Mikilvægt
er fyrir alla að skipuleggja vel þennan kafla í lífinu, til að hann til að verða okkur auðveldur og
ánægjulegur.
Námskeiðið hentar öllum óháð því í hvaða tekjustigi þeir eru.
Fyrirkomulag
Námskeiðið getur verið í staðarkennslu eða fjarkennslu.
Námskeiðið er í boði á íslensku eða ensku.
Tímalengd er 3 klst
Nánar um kennarann
Þóra Valný Yngvadóttir hefur yfir 25 ára reynslu á fjármálamarkaði þar sem hún starfaði sem fjármálaráðgjafi í Prudential Englandi og stjórnandi ráðgjafar í Kaupþingi og Landsbankanum.
Námskeið hennar hafa notið mikilla vinsælda og er þar sérstaklega vísað til einstakra hæfileika hennar til að fjalla um fjármál á mannamáli, tengja við daglegt líf og gera skemmtilegt.
.
Þóra Valný er viðskiptafræðingur með löggildinarpróf í fjármálaráðgjöf FPC frá
viðskiptaráðuneyti Bretlands. Hún er einnig með löggildingu í verðbréfaviðskiptum frá Háskóla
Íslands og ACC vottaður markþjálfi frá Háskólanum í Reykjavík. Í dag er Þóra Valný með fyrirtækið Val og virði þar sem hún veitir einstaklingum fjármálaráðgjöf og heldur námskeið um flest það sem tengist fjármálum.

