top of page
Yoga Studio with View

​Framúrskarandi fjárhagsleg heilsa
NÝTT ÁR - Tiltekt og úrbætur í fjármálum  
Viltu eiga meiri peninga fyrir þig?

Næstu námskeið

14. janúar kl. 19:00 - 22:00, fjarnámskeið á TEAMS.

11. febrúar kl. 19:00 - 22:00, fjarnámskeið á TEAMS.

4. mars kl. 19:00 - 22:00, fjarnámskeið á TEAMS 

Verð 19.900 kr. 

Markmið

Markmið námskeiðsins er að taka fjárhagslegu heilsuna í gegn þannig að þú njótir framúrskarandi fjárhagslegrar heilsu á þessu ári, með stöðugri yfirsýn og öflugu sparnaðar skipulagi.

 

Um námskeiðið

Hér er á ferðinni námskeiðið sem beðið hefur eftir þar sem við tökum fjármálin í skoðun, rétt eins og við förum með bílinn í skoðun og gerum svo þær úrbætur sem við þurfum að gera til að allt gangi smurt og þægilega.

Fjárhagsleg heilsa felur í sér að fjármálin þín eru þannig í stakk búin að þau uppfylla þín markmið í nútíð og framtíð. Þá ertu með fjárhagslega meðvitund sem þýðir að þú veist nákvæmlega stöðuna á fjármálunum, í hvað þú notar peningana og í hvað þú vilt nota peningana þína í framtíðinni. 

Á þessu námskeiði er farið yfir hugarfarið tengt sparnaði og hvaða tækni þarf að beita til að ná markmiðum í sparnaði. Þetta er gert með sparnaðar skipulagi og aðferðum til að skipuleggja peningana betur þannig að til séu peningar fyrir sparnaði. Á sama hátt og við gætum að almennri heilsu okkar alla daga, þá viljum við fylgjast með fjárhagslegri heilsu okkar alla daga. Því til viðbótar tökum við mánaðarlega stöðuna á fjárhagslegri heilsu til að ákveða hvaða breytingar þarf að gera með breyttum aðstæðum í lífinu eða áherslum. Á námskeiðinu eru kennd auðveld aðferð til að öðlast þessa yfirsýn og vera alltaf með stjórnun á því í hvað peningarnir fara.

Meðal þeirra spurninga sem er svarað er:

  • Hvernig er best að spara?

  • Í hvaða viðbótarlífeyrissparnað er best að spara?

  • Er einhver munur á milli lífeyrissjóða?

  • Á ég að taka tilgreinda séreign?

  • Er sniðurgt að nota viðbótarlífeyrissparnað til að kaupa íbúð?

  • Hvað er hlutdeildarlán og fyrir hverja?

  • Hvernig á ég að hafa sparnaðarskipulagið mitt?

  • Hvað er rómantískt reikningakvöld?

  • Hvernig öðlast ég stöðuga yfirsýn yfir fjármálin?

  • Hvað skiptir mestu máli þegar ég vel íbúðalán?

  • Hvað er mikilvægast að vita um lán almennt?

Og margt fleira tengt fjárhagslegri heilsu.​

 

Það sem þátttakendur fá á námskeiðinu

Áhersla er á að fyrir málin á mannamáli á léttan og skemmtilegan hátt. Þátttakendur fá skjal ti lað gera sína peningaáætlun, sparnaðarskipulag og peningayfirsýn. Einnig fá þátttakendur samantektar bækling til að nota til upprifjunar.

Fyrir hverja

Námskeiðið hentar öllum einstaklingum sem vilja taka stöðuna á fjármálunum sínum og vilja vinna að því að efla sína fjárhagslegur heilsu til að njóta peninganna sinna. Námskeiðið er gagnlegt öllum einstaklingum, sama í hvaða tekjustiga þeir eru.  Mælt er með að hjón/par sitji námskeiðið saman.

 

Fyrirkomulag

Námskeiðið getur verið í staðarkennslu eða fjarkennslu. Sjá hér að ofan hvenær næstu námskeið verða. 

Námskeiðið er í boði á íslensku eða ensku.

Tímalengd er 3 klst. 

Nánar um kennarann

Þóra Valný Yngvadóttir hefur yfir 25 ára reynslu á fjármálamarkaði þar sem hún starfaði sem fjármálaráðgjafi í Prudential Englandi og stjórnandi ráðgjafar í Kaupþingi og Landsbankanum.  Námskeið hennar hafa notið mikilla vinsælda og er þar sérstaklega vísað til einstakra hæfileika hennar til að fjalla um fjármál á mannamáli, tengja við daglegt líf og gera skemmtilegt.

 

Þóra Valný er viðskiptafræðingur með löggildinarpróf í fjármálaráðgjöf FPC frá

viðskiptaráðuneyti Bretlands. Hún er einnig með löggildingu í verðbréfaviðskiptum frá Háskóla

Íslands og ACC vottaður markþjálfi frá Háskólanum í Reykjavík. Í dag er Þóra Valný með

fyrirtækið Val og virði þar sem hún veitir einstaklingum fjármálaráðgjöf og heldur námskeið fyrir

fyrirtæki og stofnanir, um fjármál, söluþjónustu, stefnumótun og fleira.

bottom of page